Á þessu ári hefur Snapchat Fótbolta.net slegið í gegn. Þar hafa af og til birst myndbönd af aðilum sem reyna við gestaþrautina á skrifstofu Fótbolta.net.
Í gestaþrautinni er markmiðið að senda boltann eftir þröngum gangi án þess að hann snerti veggina. Fáir aðilar hafa náð að klára þrautina hingað til.
Gangurinn hefur oft komið við sögu í íslensku sjónvarpi en strákarnir í 70 mínútum slógu þar ófá Íslandsmet á sínum tíma líkt og Auðunn Blöndal benti á í ummælum á Instagram síðu Fótbolta.net í dag.
Þá voru einnig atriði í Fóstbræðrum tekinn upp á ganginum á sínum tíma.
Tryggvi Guðmundsson, markahæsti maður efstu deildar frá upphafi, fékk að spreyta sig í gestaþrautinni í dag.
Tryggvi, sem fagnar 41 árs afmæli sínu í dag, náði gestaþrautinni í fyrstu tilraun. Skot Tryggva má sjá hér að neðan.
Athugasemdir