Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 30. júlí 2015 09:00
Arnar Geir Halldórsson
Tranquillo Barnetta til Philadelphia Union (Staðfest)
Barnetta í baráttu við Emil Hallfreðsson
Barnetta í baráttu við Emil Hallfreðsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Svissneski landsliðsmaðurinn, Tranquillo Barnetta, er genginn til liðs við MLS félagið Philadelphia Union.

Barnetta kemur til liðsins á frjálsri sölu en hann lék síðast með Schalke 04 í þýsku Bundesligunni.

Þessi þrítugi miðjumaður á 75 landsleiki að baki með svissneska landsliðinu en hann hefur leikið í þýska boltanum frá árinu 2004.

Barnetta mun leika í treyju númer 85 hjá Philadelphia Union en liðið er í næstneðsta sæti Austurdeildarinnar með 22 stig eftir 22 leiki.
Athugasemdir
banner
banner