Hafsteinn Briem, leikmaður ÍBV, hefur beðist afsökunar á hegðun sinni í 4-1 tapi liðsins gegn KR í undanúrslitum Borgunarbikarsins í kvöld.
Hafsteinn var heppinn að sleppa með gult spjald þegar hann sparkaði í tvígang í Jacob Schoop, leikmann KR, þar sem hann lá í grasinu.
Þóroddur Hjaltalín dómari hafði flautað brot og Hafsteinn sparkaði að því er virtist nokkuð fast í boltann, sem var fyrir framan Schoop, en ljóst var að ásetningurinn var ekki góður.
Hafsteinn hefur nú beðist afsökunar og viðurkennt að þessi hegðun hans hefði ekki átt að sjást. Hér að neðan má sjá afsökunarbeiðni Hafsteins á Twitter.
UPPFÆRT: Jacob Schoop hefur tekið afsökunarbeiðni Hafsteins góða og gilda, en hann var ansi ósáttur þegar atvikið átti sér stað.

@HafsteinnBriem4 All good mate, no worries. What happens on the pitch stays on the pitch✌🏼️
— Jacob Toppel Schoop (@JacobTSchoop) July 30, 2015
Athugasemdir