Stefán Logi Magnússon, markvörður KR, var ekki í leikmannahóp liðsins í 4-1 sigrinum gegn ÍBV í undanúrslitum Borgunarbikarsins í kvöld.
Ástæðan er sú að Stefán Logi meiddist í síðasta leik gegn Breiðabliki eftir viðskipti sín við framherjann Jonathan Glenn.
Ástæðan er sú að Stefán Logi meiddist í síðasta leik gegn Breiðabliki eftir viðskipti sín við framherjann Jonathan Glenn.
„Hann fékk högg á legginn og hnéð í þeim leik og var ekki klár í þennan leik, en vonandi verður hann klár í næstu viku," sagði Bjarni Guðjónsson, þjálfari KR, eftir leikinn.
„Við vitum ekki alveg hversu lengi þetta er að fara í gegnum líkamann hjá honum en við vonum að hann verði klár á miðvikudaginn."
Sindri Snær Jensson stóð vaktina í stað Stefáns Loga í kvöld.
Athugasemdir