banner
   fim 30. júlí 2015 08:30
Arnar Geir Halldórsson
Zidane: Di Maria getur tekið PSG á næsta stig
Á förum frá Old Trafford
Á förum frá Old Trafford
Mynd: Getty Images
Franska goðsögnin, Zinedine Zidane, telur að Angel Di Maria sé leikmaðurinn sem PSG þarf á að halda til að geta gert tilkall til sigurs í Meistaradeild Evrópu.

Di Maria mun að öllum líkindum ganga í raðir Parísarliðsins á næstu dögum frá Man Utd en ZIdane þekkir vel til Argentínumannsins eftir að hafa unnið með honum hjá Real Madrid.

„Angel Di Maria er svo orkumikill og hraði hans gerir að það verkum að hann getur gert eitthvað sérstakt".

„Hann er leikmaður sem getur farið með PSG á næsta stig. Það er það sem þeir þurfa að gera til að fara lengra í Meistaradeildinni", sagði Zidane í samtali við frönsku sjónvarpsstöðina BFM.

PSG vann allar keppnir sem hægt var að vinna í Frakklandi á síðustu leiktíð en féll úr leik í Meistaradeildinni í 8-liða úrslitum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner