Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 30. júlí 2016 07:45
Ívan Guðjón Baldursson
Adriano til Besiktas (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Tyrknesku meistararnir í Besiktas hafa gengið frá kaupunum á brasilíska bakverðinum Adriano frá Barcelona.

Adriano er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Besiktas og greiðir félagið 1.7 milljón evra.

Adriano er 31 árs gamall og gekk til liðs við Barcelona fyrir sex árum. Síðan þá hefur hann komið við sögu í 189 leikjum fyrir Börsunga en síðustu tvö tímabil hefur spilatími hans minnkað til muna.

Adriano á 17 landsleiki að baki fyrir Brasilíu og spilaði fyrst fyrir Coritiba og síðar Sevilla áður en hann gekk til liðs við Börsunga fyrir rúmlega 10 milljónir evra.
Athugasemdir
banner
banner
banner