Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 30. júlí 2016 18:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Zlatan strax búinn að skora - Magnað mark
Mynd: Twitter
„Guðinn í Manchester er mættur," þetta er það fyrsta sem maður les í frétt 101 Great Goals í kvöld, en Zlatan Ibrahimovic er búinn að skora sitt fyrsta mark fyrir Manchester United.

Það tók hinn 34 ára gamla Zlatan aðeins fjórar mínútur að skora sitt fyrsta mark fyrir nýja liðið sitt. Man Utd leikur nú æfingaleik við Galatasaray í Svíþjóð.

Markið var svo sannarlega ekki af verri gerðinni. Antonio Valencia sendi boltann fyrir og þar var Zlatan mættur í teignum, tók klippu og boltinn endaði í netinu.

Zlatan kom United yfir, en Galatasaray náði að koma til baka með tveimur mörkum. Það er kominn hálfleikur í leiknum og staðan er því 2-1 fyrir Galatasaray.

Hér að neðan má sjá myndband af markinu.



Athugasemdir
banner
banner
banner