Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   lau 30. júlí 2016 15:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pogba áritaði Man Utd treyju merkta sjálfum sér
Pogba áritaði Man Utd treyju merkta sér
Pogba áritaði Man Utd treyju merkta sér
Mynd: Getty Images
Sagan endalausa heldur áfram. Er Paul Pogba á leið til Manchester United? Franski miðjumaðurinn hefur verið orðaður við sitt fyrrum félag í allt sumar og allt bendir til þess að hann muni snúa aftur á Old Trafford.

Pogba hefur verið í fríi í Bandaríkjunum, nánar tiltekið í Los Angeles, eftir að hafa spilað með Frökkum á EM. Þar fór hann alla leið í úrslit með sínu liði, þar sem tap gegn Portúgölum var þó niðurstaðan.

Stuðningsmenn United bíða spenntir eftir fregnum af Pogba, en sumir eru spenntari en aðrir. Stuðningsmaður að nafni Jonathan Perkins er svo spenntur að hann er búinn að fá sér Man Utd treyju merkta Pogba og númerinu 6, en talið er líklegt að það Pogba muni klæðast því númeri hjá United ef allt gengur upp.

Svo skemmtilega vildi til að Perkins hitti á Pogba í Los Angeles. Perkins var í nýju Man Utd treyjunni sinni og fékk hann Pogba til árita hana. Myndir af þessu má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner