Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 30. júlí 2016 14:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ranieri: Mahrez of klár til að yfirgefa félagið
Riyad Mahrez er 25 ára gamall og eftirsóttur af Arsenal.
Riyad Mahrez er 25 ára gamall og eftirsóttur af Arsenal.
Mynd: Getty Images
Claudio Ranieri vill ólmur halda Riyad Mahrez innan félagsins og segist eiga regluleg samtöl við kantmanninn eftirsótta.

Mahrez fór á kostum á síðasta tímabili og var í lykilhlutverki er Leicester City varð deildarmeistari.

„Ég tala reglulega við hann og segi honum alltaf að vera áfram með okkur því það sé betra fyrir framtíðina hans. Ég held að hann sé of klár til að yfirgefa félagið," sagði Ranieri við Sky Sports.

„Við styðjum mjög vel við bakið á honum, það er afar mikilvægt og alls ekki sjálfsagt.

„Ef hann vill bæta sig sem mest þá er hollast fyrir hann að vera áfram hér í annað ár, kannski getur hann hugsað um að finna annað félag á næsta ári. Ef hann verður seldur á mikinn pening þá mun vera gífurlega mikil pressa á honum hjá sínu nýja félagi."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner