Inter Milan 1 - 4 Bayern München
0-1 Julian Green ('7 )
0-2 Franck Ribéry ('13 )
0-3 Julian Green ('30 )
0-4 Julian Green ('35 )
1-4 Mauro Icardi ('90 )
0-1 Julian Green ('7 )
0-2 Franck Ribéry ('13 )
0-3 Julian Green ('30 )
0-4 Julian Green ('35 )
1-4 Mauro Icardi ('90 )
Bayern München valtaði yfir Inter Milan í fyrri hálfleik þegar liðin mættust á International Champions Cup æfingamótinu. Liðin áttust við á Bank of America Stadium í Charlotte í Norður-Karólínu fylki í Bandaríkjunum.
Það hinn bandarísk-ættaði Julian Green sem kom Bayern yfir eftir sjö mínútna leik. Green hefur átt í erfiðleikum með að brjótast inn í aðallið Bayern og hefur hann verið orðaður við brottför frá félaginu á þessu undirbúningstímabili. Hann átti þó magnaðan leik í dag og sýndi úr hverju hann er gerður.
Franck Ribéry kom Bayern í 2-0 og Julian Green var aftur á ferðinni eftir hálftíma leik. Hann náði svo að fullkomna þrennu sína áður en flautað var til hálfleiks og magnaður leikur hans fullkomnaður.
Bayern náði ekki að sýna sömu frammistöðu í seinni hálfleiknum, en það kom ekki að sök. Mauro Icardi náði að minnka muninn á 90. mínútu, en það var ekki nóg og lokatölur í Norður-Karólínu því 4-1 fyrir þýska stórveldinu.
Athugasemdir