Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 30. júlí 2016 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sky: Hull hafnaði 7 milljónum fyrir Robertson
Mynd: Getty Images
Sky Sports greinir frá því að Hull City hafi hafnað 7 milljónum punda frá West Ham fyrir Andrew Robertson.

Robertson er 22 ára vinstri bakvörður sem hefur verið byrjunarliðsmaður hjá Hull City frá komu sinni til félagsins fyrir tveimur árum.

West Ham hefur einn af bestu vinstri bakvörðum ensku úrvalsdeildarinnar innanborðs í formi Aaron Cresswell en hann er meiddur í nokkra mánuði og því þarf félagið að finna hæfan bakvörð.

Líklegt er að Hamrarnir bjóði hærri upphæð í Robertson sem var í lykilhlutverki er Hull komst upp úr Championship deildinni í maí.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner