Wissam Ben-Yedder hefur lengi verið talið einn vanmetnasti framherji frönsku deildarinnar en vakti mikla athygli á sér með góðri frammistöðu á síðasta tímabili.
Ben-Yedder, sem verður 26 ára eftir tvær vikur, er aðeins 170cm á hæð en afar góður á boltanum, enda á hann tvo leiki að baki fyrir franska landsliðið í Futsal.
Ben-Yedder, sem verður 26 ára eftir tvær vikur, er aðeins 170cm á hæð en afar góður á boltanum, enda á hann tvo leiki að baki fyrir franska landsliðið í Futsal.
Arsenal var nálægt því að klófesta sóknarmanninn en Sevilla hafði betur á endanum og borgar 9 milljónir evra.
Síðustu fjögur tímabil hefur Ben-Yedder skorað 62 mörk í 143 deildarleikjum og hægt er að sjá nokkur þeirra hér á myndbandi fyrir neðan.
Athugasemdir