lau 30. júlí 2016 21:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: BBC 
Zlatan: Verður mjög áhugavert ef Pogba kemur líka
Zlatan er spenntur fyrir framhaldinu
Zlatan er spenntur fyrir framhaldinu
Mynd: Twitter
Zlatan Ibrahimovic telur að það sé eitthvað stórt í vændum hjá Manchester United eftir 5-2 sigur á Galatasaray í dag. Zlatan spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið í dag og hann náði að skora sitt fyrsta mark eftir fjögurra mínútna leik.

Markið var einstaklega glæsilegt, en hann skoraði það með svokallaðari klippu eftir frábæra fyrirgjöf hjá Antonio Valencia.

Zlatan ræddi við fjölmiðla eftir leikinn og þar talaði hann meðal annars um Paul Pogba sem hefur verið sterklega orðaður við Man Utd upp á síðkastið.

„Það er eitthvað stórt í gangi og þetta verður mjög áhugavert ár," sagði Zlatan. „Segjum það ef Pogba kemur líka, þetta verður mjög áhugavert."

„Ég mun hjálpa liðinu eins mikið og ég get og ég mun gera það sem ég er góður í, að skapa færi og að skora mörk."

Athugasemdir
banner
banner