Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 30. ágúst 2014 13:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Darren Bent verður áfram hjá Aston Villa
Darren Bent.
Darren Bent.
Mynd: Getty Images
Paul Lambert, þjálfari Aston Villa segir að Darren Bent sé ekki til sölu en fastlega var gert ráð fyrir því að leikmaðurinn væri á leið frá félaginu.

Bent var lánaður til Fulham á síðustu leiktíð og virtist hann ekki eiga framtíð hjá Villa.

Bent er hins vegar kominn aftur í hópinn á þessu ári, ásamt Alan Hutton.

Christian Benteke og Libor Kozak eru meiddir og verður Villa því að reiða sig á Bent.

,,Ég býst við að hann verði hér þegar að glugginn lokar," sagði Lambert.

,,Ég vil halda Darren. Eins og ég hef sagt áður þá verðum við að gera það sem er rétt fyrir Aston Villa. Enginn mun fara áður en ég segi svo."
Athugasemdir
banner
banner
banner