Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 30. ágúst 2014 23:00
Grímur Már Þórólfsson
El Ahmadi til Feyenoord (Staðfest)
Hollenski
Karim El Ahmadi
Karim El Ahmadi
Mynd: Getty Images
Karim El Ahmadi er genginn til liðs við Feyenoord frá Aston Villa.

Þessi landsliðsmaður Marokkó gerði þriggja ára samning við Feyenoord en kaupverðið er um 700 þús evrur.

Ahmadi er 28 ára gamall miðjumaður og fór frá Feyenoord til Aston Villa fyrir tveimur árum. Hann spilaði 45 deildarleiki fyrir Villa og skoraði í þeim þrjú mörk.

Feyenoord fengu annan miðjumann fyrr í þessari viku en Jens Toornstra kom frá FC Utrecht. Þá gerði hollenski landsliðsmiðjumaðurinn Jordie Clasie nýjan fjögurra ára samning við félagið fyrr í vikunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner