Gregg Ryder, þjálfari Þróttara, var kátur í leikslok þegar Þróttur lagði Tindastól 4-0.
Staðan í hálfleik var markalaus en Þróttarar gerðu breytingu í seinni hálfleik og inn kom Vilhjálmur Pálmason og lagði upp þrjú mörk á fyrstu fimm mínútunum.
,,Fyrri hálfleikur var lélegur en við töluðum saman í hálfleik og fórum yfir hlutina og ég fékk þá til að spila fótbolta aftur," sagði Gregg.
Nánar er rætt við hann í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir