Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 30. ágúst 2014 12:55
Jóhann Ingi Hafþórsson
Lassana Diarra á leið til QPR
Lassana Diarra í leik með Real Madrid.
Lassana Diarra í leik með Real Madrid.
Mynd: Getty Images
Lassana Diarra er á leiðinni í læknisskoðun hjá QPR.

Diarra hefur yfirgefið Lokomotiv Moskvu eftir rifrildi við þjálfara liðsins og búist er við að hann gangi til liðs við Harry Redknapp sem hann spilaði undir hjá Portsmouth.

Hinn 29 ára Frakki spilaði einnig með Chelsea og Arsenal en hann hefur lent í London og aðeins þarf að klára læknisskoðun og samþykja kaup og kjör.

Redknapp fékk Diarra til sín frá Arsenal árið 2008 fyrir um 5.5 milljónir en hann fór til Real Madrid á tæpar 19 milljónir ári síðar.
Athugasemdir
banner
banner