banner
   lau 30. ágúst 2014 21:15
Grímur Már Þórólfsson
Mourinho: Óánægður með að fá þessi mörk á okkur
Jose Mourinho
Jose Mourinho
Mynd: Getty Images
Mourinho var ánægður með sigurinn 6-3 sigur á Everton í dag og þá var hann sérstaklega ánægður með sóknarleikinn. Hann var þó ekki ánægður með varnarleikinn og fá á sig þrjú mörk.

,,Ég veit að Everton eru góðir sóknarlega, en að fá á okkur þrjú mörk er alltof mikið. Öll má rekja til einstaklingsmistaka.

Við vorum frábærir í sóknarleiknum, sérstaklega í skyndisóknum. Svo að koma á þennan leikvang og sækja þrjú stig er ástæða til að vera ánægður. Þegar þú kemur hingað og skorar sex mörk þá veistu að liðið þitt gerði vel."


Þá var Mourinho sérstaklega ánægður með Diego Costa, sem er kominn með fjögur mörk í fyrstu þrem leikjum sínum fyrir þá bláklæddu.

,,Hann fékk þrjú færi og skoraði tvö mörk. Hitt var vel varið af Tim Howard.

Hann er frábær að klára færin, hann er leikmaður sem getur gert útslagið og þá vinnur hann varnarvinnuna vel líka."

Athugasemdir
banner
banner