Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 30. ágúst 2015 06:00
Arnar Geir Halldórsson
Heimild: Valencia 
Abdennour til Valencia (Staðfest)
Aymen Abdennour
Aymen Abdennour
Mynd: Valencia
Túnismaðurinn Aymen Abdennour er genginn til liðs við Valencia frá Monaco.

Valencia borgar 30 milljónir evra fyrir þennan 26 ára gamla miðvörð sem gerir fimm ára samning við spænska liðið.

Abdennour er ætlað að fylla skarð Nicolas Otamendi hjá Valencia en Otamendi gekk til liðs við Man City á dögunum.

Abdennour hefur verið orðaður við lið á borð við Barcelona og Chelsea í sumar og ljóst að hann mun reynast Valencia mikill liðsstyrkur.

Valencia sló Monaco út í undankeppni Meistaradeildarinnar í vikunni og hefur nú keypt af þeim lykilmann.

Abdennour á 33 landsleiki að baki fyrir Túnis en hann hefur leikið með Toulouse, Werder Bremen og Etoile du Sahel auk Monaco á ferli sínum.


Athugasemdir
banner
banner
banner