Brasilíski varnarmaðurinn Dante er genginn til liðs við Wolfsburg frá Bayern Munchen.
Dante hefur undanfarið verið orðaður við ensk úrvalsdeildarlið og var talið líklegt að hann myndi enda hjá Leicester.
Twitter síða Bayern Munchen staðfesti hinsvegar nú rétt í þessu að hann hafi verið seldur til Wolfsburg.
Wolfsburg borgar 4,5 milljónir evra fyrir þennan 31 árs gamla leikmann sem lék með Borussia Mönchengladbach áður en hann gekk til liðs við Bayern árið 2012.
Thank you for everything! @dante_bonfim will soon complete a transfer to Wolfsburg. #ThanksDante pic.twitter.com/eJOJOSgDhV
— FC Bayern English (@FCBayernEN) August 30, 2015
Athugasemdir