Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 30. ágúst 2015 13:40
Arnar Geir Halldórsson
Fer Julian Draxler til Wolfsburg?
Á leið til Wolfsburg?
Á leið til Wolfsburg?
Mynd: Getty Images
Julian Draxler gæti verið að færa sig um set í Bundesligunni en hann er sagður vera á leið til Wolfsburg.

Ef af verður er um að ræða mjög óvænt félagaskipti þar sem Draxler hefur verið sterklega orðaður við Juventus undanfarnar vikur.

Wolfsburg festi kaup á Dante frá Bayern Munchen fyrr í dag og samkvæmt þýskum miðlum gæti Draxler verið næstur.

Kevin De Bruyne er við það að ganga til liðs við Man City frá Wolfsburg fyrir rúmar 50 milljónir punda og lítur félagið á Draxler sem kjörinn arftaka Belgans.

Schalke vill fá 25 milljónir punda fyrir Draxler sem á 15 A-landsleiki að baki fyrir Þýskaland þrátt fyrir að vera aðeins 21 árs gamall.
Athugasemdir
banner
banner