Gary Martin, sóknarmaður KR, fékk ekki að ræða við fjölmiðla eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn Val í Pepsi-deildinni í kvöld.
Einhverjir blaðamenn sóttust eftir því að fá að ræða við Gary, sem sat allan leikinn á varmannabekknum gegn Val, en fengu ekki leyfi.
Gary var dreginn burt af þjálfaranum Henrik Bödker og fjölmiðlafulltrúa liðsins, en hann ku sjálfur hafa viljað tjá sig.

Framtíð Gary er í mikilli óvissu en hann hefur mátt þola mikla bekkjarsetu á tímabilinu þrátt fyrir að hafa verið markahæsti leikmaður Pepsi-deildarinnar í fyrrasumar.
Athugasemdir