Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 30. ágúst 2015 05:55
Arnar Geir Halldórsson
Ísland í dag - Heil umferð í Pepsi-deildinni
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Heil umferð fer fram í Pepsi deild karla í kvöld.

Fyrsti leikur dagsins fer fram klukkan 17 en þá fær ÍBV Keflavík í heimsókn í fallbaráttuslag. Hinir leikirnir fimm hefjast svo klukkutíma síðar.

Sjónvarpsleikur dagsins er Reykjavíkurslagur KR og Vals á Alvogenvellinum en KR-ingar eiga harma að hefna gegn Völsurum eftir bikarúrslitaleik liðanna á dögunum.

Þá eru tveir leikir í neðri deildum sem áttu að fara fram í gær en var frestað vegna þess að vellirnir voru á floti eftir mikla rigningu.

Allir á völlinn!

Leikirnir í Pepsi deildinni verða að sjálfsögðu allir í beinum textalýsingum hjá okkur.

Leikir dagsins
17:00 ÍBV-Keflavík (Hásteinsvöllur)
18:00 Fylkir-ÍA (Fylkisvöllur)
18:00 KR-Valur (Alvogenvöllurinn - Stöð 2 Sport 2)
18:00 Fjölnir-Stjarnan (Fjölnisvöllur)
18:00 FH-Víkingur R. (Kaplakrikavöllur)
18:00 Breiðablik-Leiknir R. (Kópavogsvöllur)

2.deild
14:00 KF-Höttur (Ólafsfjarðarvöllur)

3.deild
14:00 Einherji-Berserkir (Vopnafjarðarvöllur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner