Brasilíski varnarjaxlinn Dante mun að öllum líkindum yfirgefa Bayern Munchen áður en félagaskiptaglugginn lokar í næstu viku.
Vitað er af áhuga frá liðum í ensku úrvalsdeildinni og er Leicester nú talinn líklegur áfangastaður.
Claudio Ranieri, stjóri Leicester, leitast eftir því að styrkja varnarlínuna sína áður en glugginn lokar.
Dante er sagður falur fyrir 5 milljónir punda en þessi 31 árs gamli miðvörður er á eftir Mehdi Benatia og Jerome Boateng í goggunarröðinni á Allianz Arena.
Athugasemdir