Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
   sun 30. ágúst 2015 20:44
Magnús Þór Jónsson
Milos: Okkur vantar ennþá þrjú stig
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Fyrsta tap Víkinga undir stjórn Milosar sem þjálfara kom í kvöld...eða hvað?

"Ef ég man rétt þá höfum við tapað nokkrum leikjum í sumar en vissulega fyrsta tap eftir langan tíma sem er frekar súrt, en svona er bara fótboltinn"

Víkingar fengu færi í leiknum í kvöld, þ.á.m. eftir um 20 sekúndur en tókst ekki að nýta þau til að skora.

"Kannski vorum við ekki búin að hita almennilega upp, þetta var stórt færi sem við fengum þá.  Ég er ekki búinn að telja færin en við fengum nokkur og vorum inni í leiknum allan tímann, vorum með plan sem við breyttum og breyttum svo aftur en það dugði ekki."

Milos er býsna duglegur að róta leikkerfum og leikmönnum í leikstöðum á meðan á leiknum stendur.  Er þetta eitthvað sem kalla má hans upplegg í þjálfuninni.

"Já það er það. Maður fer í leik með plan A og plan B og stundum plan C.  Strákarnir vita alveg af breytingunum.  Taktík og taktík, það eru alltaf ellefu menn að spila við ellefu menn, við verjum þau svæði sem eru hættuleg og reynum að nýta okkur þau tækifæri sem gerast."

Er markmiðið ekki ennþá að kveðja falldrauginn.

"Jú. Okkur vantar ennþá þrjú stig. Þegar við fáum þau þrjú stig þá get ég sagt að við erum öruggir".

Nánar er rætt við Milos í viðtalinu sem fylgir fréttinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner