Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
banner
   sun 30. ágúst 2015 20:47
Arnar Ingi Ingason
Fjölnisvelli
Rúnar Páll: Vorum sjálfum okkur verstir
Rúnar Páll Sigmundsson
Rúnar Páll Sigmundsson
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Við áttum í smá ströggli í fyrri hálfleik og fengum óþarfa mikið af færum á okkur. Við vorum sjálfum okkur verstir í fyrri hálfleik.“ sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunar í Pepsi deild karla, eftir jafntefli gegn Fjölni á útivelli.

„Ég var ánægður með spilamennskuna í seinni hálfleik og strákarnir verða að fá hrós fyrir það.“

Veigar Páll kom inn á í byrjun seinni hálfleiks og breytti spili Stjörnumanna mikið.

„Við vorum stundum flatir með Gauja og Jeppa uppi. Veigar Páll kom vel inn í þetta og breytir svolítið leiknum.“

„Svona í heildina litið var þetta sanngjarnt jafntefli, held ég. [...] Núna er bara pása í einhverja 14 daga, landsleikjapása, og við ætlum að æfa vel í pásunni og klára mótið með sæmd. Það er okkar markmið.“

Michael Præst, fyrirliði Stjörnunnar, var ekki í leikmannahópi í dag vegna meiðsla.

„Nei hann meiddist á æfingu, á ökkla. Við treystum honum ekki til að spila né treysti hann sér sjálfur til að spila. Þannig við hvíldum hann í dag.“

Guðjón Baldvinsson skoraði loksins sitt fyrsta mark í sumar fyrir Stjörnuna. Rúnar var sáttur með það.

„Þetta var frábært hjá Gauja, flott mark. Vel spilað. Mjög mikilvægt fyrir Guðjón að skora mark upp á sjálfstraustið.“
Athugasemdir
banner
banner
banner