Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 30. ágúst 2015 18:34
Alexander Freyr Tamimi
Spánn: Óvænt tap Athletic Bilbao
Leikmenn Eibar fagna marki Adrian Gonzalez.
Leikmenn Eibar fagna marki Adrian Gonzalez.
Mynd: Getty Images
Eibar 2 - 0 Athletic
1-0 Saul ('34 , víti)
2-0 Adrian Gonzalez ('61 )

Eibar tók sig til og vann góðan 2-0 heimasigur gegn Athletic Bilbao í spænsku La Liga í kvöld.

Það var Saul sem kom heimamönnum yfir á 34. mínútu og Adrian Gonzalez kláraði svo leikinn á 61. mínútu.

Eibar átti að falla á síðustu leiktíð, enda lenti liðið í 18. sæti, en vegna fjárhagsvandræða Elche féllu þeir síðarnefndu í staðinn.

Athletic Bilbao hefur byrjað tímabilið illa og tapað tveimur fyrstu leikjum sínum eftir að hafa lagt Barcelona af velli í ofurbikarnum.
Athugasemdir
banner
banner