Tveim leikjum er lokið í sænsku úrvalsdeildinni í dag þar sem tveir Íslendingar voru í eldlínunni.
Haukur Heiðar Hauksson lék allan leikinn fyrir AIK sem lagði Atvidaberg á heimavelli. Haukur Heiðar nældi sér í gult spjald á 37.mínútu.
Á sama tíma lék Hjálmar Jónsson allan leikinn í vörn Gautaborgar sem fór illa með Gefle. Gautaborg styrkti þar með stöðu sína á toppi deildarinnar en Haukur Heiðar og félagar eru ekki langt undan í öðru sætinu.

AIK 1-0 Atvidaberg
1-0 Nils-Eric Johansson (´32)
Gautaborg 3-0 Gefle
1-0 Sören Rieks (´18)
2-0 Riku Riski (´50)
3-0 Emil Salomonsson (´73)
Rautt spjald: Tom Pettersson, Gautaborg (´80)
Athugasemdir