Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 30. ágúst 2015 08:30
Arnar Geir Halldórsson
Witsel á leið í ítalska boltann - Milan eða Juve?
Kominn með nóg af Zenit?
Kominn með nóg af Zenit?
Mynd: Getty Images
Belgíski miðjumaðurinn Axel Witsel er á förum frá rússneska stórliðinu Zenit.

Juventus og AC Milan eru bæði áhugasöm um að fá kappann til liðs við sig.

Talið er að áhugi Juventus hafi kviknað á ný um helgina eftir að Schalke hafnaði öllum tilboðum í Julian Draxler.

Witsel hefur óskað eftir að losna frá Zenit en hann kom til liðsins fyrir þrem árum frá Benfica. Zenit borgaði þá 40 milljónir evra fyrir leikmanninn.

Witsel er fastamaður í sterku landsliði Belgíu en hann á 57 landsleiki að baki.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner