Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 30. ágúst 2016 17:32
Elvar Geir Magnússon
Alfie Mawson til Swansea (Staðfest)
Alfie Mawson að skalla knöttinn.
Alfie Mawson að skalla knöttinn.
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson hefur fengið nýjan liðsfélaga. Miðvörðurinn Alfie Mawson er genginn í raðir Swansea frá Barnsley.

Þessi 22 ára varnarmaður er sjötti leikmaðurinn sem Swansea fær í sumarglugganum en hann hefur gert fjögurra ára samning við Swansea.

Mawson hjálpaði Barnsley að vinna neðrideildar-bikarinn og umspilsúrslitaleikinn í C-deildinni á síðasta tímabili.

Mawson er fæddur í London en hóf feril sinn hjá Reading.
Athugasemdir
banner
banner