Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 30. ágúst 2016 18:00
Elvar Geir Magnússon
Brjálað að gera á skrifstofu Hull - Keane mættur (Staðfest)
Will Keane er mættur í ástríðuna í Hull.
Will Keane er mættur í ástríðuna í Hull.
Mynd: Getty Images
Hull City hefur fengið sóknarmanninn Will Keane frá Manchester United. Keane sem er 23 ára er keyptur á eina milljón punda.

Hann skrifaði undir þriggja ára samning við Hull og vinnur því aftur undir Mike Phelan, stjóra Hull, en hann var aðstoðarstjóri Manchester United.

Það hefur verið nóg að gera á skrifstofu Hull í dag. Félagið keypti miðjumanninn Ryan Mason frá Tottenham og markvörðinn David Marshall frá Cardiff.

Hull er með sex stig að loknum þremur umferðum í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner