Gabriel Barbosa, kallaður Gabigol, er formlega genginn í raðir Inter.
Þessi 19 ára sóknarmaður kemur frá Santos í heimalandi sínu, Brasilíu. Hann gerði fimm ára samning við Inter.
Talið er að Gabigol fari beint inn í aðallið Inter en hann var einnig orðaður við Barcelona og Juventus.
Hann var í liði Brasilíu sem vann gullið á Ólympíuleikunum og lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið Santos 16 ára gamall. Spennandi verður að sjá þennan unga leikmann fóta sig í Evrópuboltanum.
Athugasemdir