Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 30. ágúst 2016 13:11
Magnús Már Einarsson
Loic Remy til Crystal Palace (Staðfest)
Mynd: Crystal Palace
Crystal Palace hefur fengið framherjann Loic Remy á láni frá Chelsea út tímabilið.

Alan Pardew, stjóri Palace, þekkir Remy því hann lék undir hans stjórn hjá Newcastle tímabilið 2013/2014.

Chelsea keypti Remy frá QPR fyrir tveimur árum en hann hefur skorað tólf mörk í 47 leikjum með félaginu.

„Þetta er mjög gott tækifæri fyrir mig," sagði hinn 29 ára gamli Remy eftir að hann skrifaði undir lánssamninginn í dag.

Remy á 31 landsleik að baki með Frökkum en á ferlinum hefur hann einnig leikið með Lyon, Lens, Nice og Marseille.
Athugasemdir
banner
banner