Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 30. ágúst 2016 11:30
Elvar Geir Magnússon
Matteo Darmian til Inter?
Darmian á förum?
Darmian á förum?
Mynd: Getty Images
La Gazzetta dello Sport segir að hægri bakvörðurinn Matteo Darmian gæti farið til Inter í ítölsku A-deildinni.

Darmian er ekki ofarlega á blaði hjá portúgalska stjóranum Jose Mourinho sem þarf að gefa grænt ljós á að selja hann.

Antonio Valencia hefur eignað sér stöðu hægri bakvarðar hjá Manchester United.

Gazzetta segir að launatölur Darmian hjá Manchester United séu þó vandamál fyrir Inter og stærsti steinninn í veginum.

Blaðið er með fleiri sögur tengdar ensku úrvalsdeildinni og þar segir meðal annars að Juventus sé enn á eftir Juan Cuadrado hjá Chelsea.

Þá segir spænska blaðið Marca að Chelsea gæti keypt James Rodriguez frá Real Madrid á gluggadeginum sem er á morgun. Spennandi að sjá hvað gerist í þessu.
Athugasemdir
banner