Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 30. ágúst 2016 12:11
Elvar Geir Magnússon
Paco Alcacer til Barcelona (Staðfest)
Munir El Haddadi lánaður til Valencia
Paco Alcacer.
Paco Alcacer.
Mynd: Getty Images
Hinn 23 ára Paco Alcacer hefur skrifað undir fimm ára samning við Barcelona sem kaupir hann frá Valencia.

Alcacer er sóknarmaður sem leikið hefur 13 landsleiki fyrir Spán og skorað sex mörk.

Í sumarglugganum hefur Barcelona keypt varnarmennina Samuel Umtiti og Lucas Digne, miðjumennina Andre Gomes og Denis Suarez og markvörðinn Jasper Cillessen.

Sem hluti af samningnum við Valencia hefur Barcelona lánað félaginu sóknarmanninn Munir El Haddadi. Valencia hefur möguleika á að kaupa Munir, sem er tvítugur, alfarið frá Börsungum eftir tímabilið.

Munir á 45 leiki að baki fyrir aðallið Barcelona.
Athugasemdir
banner
banner
banner