banner
   þri 30. ágúst 2016 20:53
Jóhann Ingi Hafþórsson
Sky: Chelsea búið að bjóða 30 milljónir í David Luiz
David Luiz gæti farið aftur til Chelsea.
David Luiz gæti farið aftur til Chelsea.
Mynd: Getty Images
David Luiz gæti gengið aftur í raðir Chelsea en Sky Sports greinir frá þessu í kvöld.

Talið er að Lúndúnarfélagið sé búið að bjóða um 30 milljónir punda í Brasilíumanninn en hann fór á sínum tíma til PSG fyrir 50 milljónur.

Sky segir að félögin séu í viðræðum og að Luiz vilji ólmur fara aftur til London en Antonio Conte, stjóri Chelsea hefur sagt að félagið ætli að bæta við sig varnarmanni.

Chelsea keypti Luiz árið 2011 fyrri 21 milljón punda en hann kom frá Benfica. Hann spilaði alls 143 leiki fyrir Chelsea og skoraði í þeim 12 mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner