Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 30. ágúst 2016 10:28
Magnús Már Einarsson
Tilboð Leicester í Slimani hafnað
Mynd: Getty Images
Sporting Lisabon hefur hafnað 25 milljóna punda tilboði frá Leicester í framherjann Islam Slimani.

Sporting vill fá 34 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Slimani er frá Alsír en hann vill sjálfur ganga til liðs við ensku meistarana.

Liðsfélagi hans, miðjumaðurinn Adrien SIlva, er nálægt því að ganga til liðs við Leicester.

Sporting hefur þegar tryggt sér mann til að fylla skarð Slimani því framherjinn Bas Dost er að koma til félagsins frá Schalke.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner