Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 30. september 2014 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ashley Cole: Lampard vinnur við að skora mörk
Ashley Cole gæti verið í byrjunarliði Roma sem heimsækir Man City í kvöld.
Ashley Cole gæti verið í byrjunarliði Roma sem heimsækir Man City í kvöld.
Mynd: Getty Images
Ashley Cole gæti mætt Frank Lampard er AS Roma heimsækir Manchester City í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

Tvímenningarnir léku með Chelsea á síðasta tímabili en eru báðir komnir til annarra meistaradeildarliða eftir sumarið.

,,Ég held að allir viti hvað Frank Lampard getur gert. Hann er frábær og leikreyndur leikmaður sem styrkir City," sagði Cole.

,,Hann hefur verið að skora mörk. Lampard skoraði gegn Chelsea og fólk verður að átta sig á því að hann vinnur við að skora mörk. Auðvitað er það smá svekkjandi fyrir hann að skora gegn sínu gamla félagi en leikurinn snýst um að skora mörk.

,,Ég er ekki að spila sérlega vel, ég ætla ekki að ljúga. Ég veit að ég get gert betur, kannski þarf ég aðeins meiri spilatíma. Ég nýt mín hér og vonandi næ ég að standa mig jafn vel og ég gerði hjá Chelsea og auðvitað Arsenal."

Athugasemdir
banner
banner
banner