Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 30. september 2014 06:00
Magnús Már Einarsson
Nú er rétti tíminn til að skrá sig í knattspyrnuskóla KB
Mynd: Kristján Bernburg
Það verða þrjú námskeið í Knattspyrnuskóla KB á næsta ári. Boðið verður upp á námskeið fyrir 15 til 17 ára og 13 til 16 ára drengi.

Fyrsta námskeiðið verður 3.til 10 apríl, það næsta 19. til 26. júlí og það þriðja 26. júlí til 2. ágúst.

Skólinn er opinn fyrir alla áhugasama knattspyrnustráka sem vilja verða betri. Mikil áhersla er lögð á tækni og að beita henni rétt.

Öll námskeiðin verða í háum gæðaflokki og eru 8 til 10 piltar á þjálfara og mikil áhersla á að einstaklingurinn fái að njóta sín. Einnig er boðið upp á sérstaka markmannsþjálfun sem er í mjög háum gæðaflokki.

Hér má sjá skemmtilegt myndband frá hópnum sem fór í Knattspyrnuskóla KB 2014.

Skráning er hafin hjá Vita.is síma 570 44 44 [email protected]


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner