Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 30. september 2014 06:00
Magnús Már Einarsson
Þróttur/ÍA bikarmeistari í 2. flokki kvenna
Mynd: Heimasíða Þróttar
Sameinað lið Þróttar og ÍA vann í síðustu viku lið Breiðabliks í úrslitaleik bikarkeppni 2 flokks kvenna.

Í upphafi seinni hálfleiks komst Breiðablik yfir 1-0 með marki Andreu Ránar Hauksdóttur. Þróttur/ÍA jafnaði á 56. mínútu þegar Guðrún Karítas Sigurðardóttir kom knettinum í netið.

Á 68. mínútu bar til tíðinda en þá kom Aldís Ylfa Heimisdóttir Þrótti/ÍA yfir eftir glæsilegan undirbúning Guðrúnar Karítasar og það reyndist vera sigurmarkið.

Þjálfarar liðsins eru Jakob Leó Bjarnason, Sigurður Hlíðar Rúnarsson og Margrét Ákadóttir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner