Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 30. september 2014 15:30
Magnús Már Einarsson
Vill að Theodór Elmar skori meira á vinstri kantinum
Theodór Elmar Bjarnason.
Theodór Elmar Bjarnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Colin Todd, þjálfari Randers, vill sjá Theodór Elmar Bjarnason skora meira í leikjum en hann er byrjaður að spila á vinstri kantinum hjá liðinu.

Elmar lék á miðjunni hjá Randers en hann er nú kominn á vinstri kantinn.

,,Ég er ekki í vafa um að hann geti staðið sig vel þar, annars hefði ég ekki tekið þessa ákvörðun," sagði Todd.

,,Hann hefur staðið sig vel. Hann er góður á boltann og hann er orkumikill. Hann má hins vegar skora fleiri mörk. Hann skoraði á móti Bröndby en hann á eftir að skora meira."

,,Hann nýtur þess að spila í þessari stöðu. Hann er ekki pirraður yfir því að spila þarna og það er mikilvægt."


Elmar var í hægri bakverði í 3-0 sigri Íslands gegn Tyrkjum fyrr í þessum mánuði en hann átti góðan leik þar.
Athugasemdir
banner
banner