Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fös 30. september 2016 13:16
Magnús Már Einarsson
700 aukamiðar til sölu á leikinn gegn Tyrklandi
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
700 aukamiðar verða til sölu á leik Íslands og Tyrklands í næstu viku.

Ísland mætir Finnlandi á Laugardalsvelli á fimmtudag en leikurinn við Tyrkja er sunnudaginn 9. október.

Uppselt er á leikinn gegn Finnum en tyrkneska knattspyrnusambandið hefur skilað 700 miðum sem ætlaðir voru fyrir stuðningsmenn Tyrklands.

Miðarnir eru í J og K hólfi og íslenskir stuðningsmenn fá nú tækifæri á að kaupa þá.

KSÍ mun kynna miðasöluna á leikinn eftir helgi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner