Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 30. september 2016 21:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Benteke: Við börðumst og komum okkur aftur inn í leikinn
Benteke fagnar hér marki sínu í kvöld
Benteke fagnar hér marki sínu í kvöld
Mynd: Getty Images
„Ég held að þetta hafi verið sanngjörn úrslit. Þetta var mjög flott frammistaða hjá strákunum. Við börðumst og komum okkur aftur inn í leikinn," sagði markaskorarinn Christian Benteke eftir 1-1 jafntefli hjá Crystal Palace og Everton í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Benteke gekk til liðs við Crystal Palace í sumar og hefur byrjað nokkuð vel. Hann segist ánægður með það hvernig hann hefur smollið inn í liðið.

„Þeir (liðsfélagarnir hjá Palace) reyna alltaf að finna mig á vellinum. Við reynum að sinna starfi okkar og vonandi getum við haldið því áfram."

Belgíski sóknarmaðurinn segir að það sé alltaf erfitt að spila gegn Everton og sérstaklega á þeirra heimavelli, Goodison Park.

„Það er aldrei auðvelt að spila gegn Everton, sérstaklega ekki á þeirra heimavelli en við sýndum góðan liðsanda til þess að ná í þetta stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner