fös 30. september 2016 21:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Goal 
Einkunnir úr Everton - Crystal Palace: Belgarnir bestir
Lukaku hefur verið að finna sig undir stjórn Koeman
Lukaku hefur verið að finna sig undir stjórn Koeman
Mynd: Getty Images
Jafntefli var niðurstaðan þegar Everton og Crystal Palace áttust við í föstudagsleiknum í ensku úrvalsdeildinni þessa helgina. Þetta var fyrsti leikurinn í sjöundu umferð deildarinnar.

Það belgískt þema á Goodison Park, heimavelli Everton, í kvöld þar belgísku turnarnir, þeir Romelu Lukaku og Christian Benteke sáu um að skora mörkin fyrir sín lið í 1-1 jafntefli.

Þeir félagar fá báðir góða einkunn fyrir sitt framlag í kvöld, en þeir fá báðir 8 í einkunn frá Goal. Næst kemur Damien Delaney, varnarmaður Palace, en hann fær einnig 8 í einkunn frá félögum okkar á Goal.

Hér að neðan má sjá einkunnargjöfina í heild sinni.

Einkunnir Everton:
Maarten Stekelenburg - 5
Seamus Coleman - 6
Phil Jagielka - 7
Ashley Williams - 6
Bryan Oviedo - 5
Idrissa Gueye - 6
Gareth Barry - 7
Yannick Bolasie - 6
Tom Cleverley - 6
Ross Barkley - 5
Romelu Lukaku - 8
(Funes Mori 5, Mirallas 5)

Einkunnir Crystal Palace:
Steve Mandanda - 5
Joel Ward - 7
James Tomkins - 5
Damien Delaney - 8
Martin Kelly - 6
James McArthur - 6
Joe Ledley - 5
Wilfried Zaha - 7
Andros Townsend - 6
Jason Puncheon - 5
Christian Benteke - 8
(Cabaye 5, Chung-Yong Lee 5)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner