„Finnar eru mjög þéttir, þetta er lið sem leggur mikla áherslu á varnarleikinn og eru með fimm manna vörn, þolinmæði er lykillinn hjá okkur á móti þeim," sagði Helgi Kolviðsson er hann var spurður út í finnska landsliðið en Ísland mætir Finnum í undankeppni HM, síðar í þessum mánuði.
Við spurðum Helga einnig út í Tyrki, andstæðinga Íslands, nokkrum nögum síðar.
Við spurðum Helga einnig út í Tyrki, andstæðinga Íslands, nokkrum nögum síðar.
„Það er í eðlisfari hjá Tyrkjunum að sækja, þeir eru með topp einstaklinga. Það hafa verið töluverðar breytingar á hópnum frá því á EM svo allt sem við vorum að skoða í sumar, gagnast okkur ekki."
Hann segir markmiðið að vinna leikina, eins og aðra heimaleiki.
„Þetta eru tveir heimaleikir og við getum komið okkar í góða stöðu, það hefur alltaf verið markmiðið að vinna heimaleikina," sagði Helgi.
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir