Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 30. september 2016 23:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: kaffið.is 
Jóhann Kristinn hættur með Þór/KA (Staðfest)
Jóhann Kristinn mun ekki stýra Þór/KA áfram
Jóhann Kristinn mun ekki stýra Þór/KA áfram
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Jóhann Kristinn Gunnarsson mun ekki halda áfram að þjálfa lið Þórs/KA í Pepsi deild kvenna, en þetta tilkynnti hann leikmönnum og aðstandendum liðsins nú rétt í þessu. Þetta kemur fram á kaffið.is

Síðasta umferðin í Pepsi-deild kvenna var leikin í dag og þar gerði Þór/KA 3-3 jafntefli við ÍBV í Vestmannaeyjum og lýkur liðið þar með keppni í fjórða sæti, annað árið í röð.

Jóhann Kristinn hefur verið við stjórnvölin hjá liðinu síðustu fimm árin og náð góðum árangri.

Á fyrsta ári sínu hjá Þór/KA gerði Jóhann liðið að Íslandsmeisturum á eftirminnilegan hátt og er það eini stóri titillinn sem félagið hefur náð að vinna.

Jóhann var svo nálægt því að vinna bikarmeistaratitil með liðinu ári síðar, en þá fór Þór/KA alla leið í úrslit þar sem það beið lægri hlut fyrir sterku liði Breiðabliks.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner