ÍBV gerði þrjú mörk á síðustu tíu mínútunum til að ná í 3-3 jafntefli gegn sterku liði Þórs/KA á Hásteinsvelli í dag.
„Vestmannaeyingar náðu að þrýsta það mikið á okkur að við náum ekki að halda í þetta," sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari gestanna í leikslok.
„Vestmannaeyingar náðu að þrýsta það mikið á okkur að við náum ekki að halda í þetta," sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari gestanna í leikslok.
Lestu um leikinn: ÍBV 3 - 3 Þór/KA
Hann hrósaði ÍBV liðinu sérstaklega fyrir rosalega endurkomu þeirra í leiknum.
„Ég ætla ekki að taka þetta af Vestmannaeyingum, þær komu hingað til að vinna leikinn rétt eins og við og þetta er frábærlega vel gert hjá ÍBV að vinna upp 3-0 forystu, þær eiga heiður skilið en ekki einhver klaufagangur hjá okkur,"
Þó Jói hafi viljað endað ofar með liðið gat hann lítið kvartað undan nýliðnu tímabili.
„Ég er mjög ánægður með tímabilið, liðið og stelpurnar sérstaklega þær hafa lagt sig vel fram og bætt sig mikið, stigasöfnunin er ekki alveg eins og við vildum, mér finnst við eiga að vera ofar."
„Heilt yfir finnst mér liðið hafa bætt sig jafnt og þétt og ég get ekki verið að bæta miklu við þetta nema það að ég er gríðarlega ánægður með stelpurnar í Þór/KA í sumar." sagði Jói að lokum.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan.
Athugasemdir