Varnarmaðurinn Dejan Lovren gæti verið í vandræðum eftir myndband sem gert var af sjónvarsstöð Liverpool birtist á veraldarvefnum. Myndbandið hefur nú verið fjarlægt.
Lovren fer ásamt liðsfélögum sínum, þeim Marko Grujic og Lazar Markovic, í bíltúr um Liverpool, en í myndbandinu syngja þeir meðal annars "You'll Never Walk Alone" saman.
Lovren fer ásamt liðsfélögum sínum, þeim Marko Grujic og Lazar Markovic, í bíltúr um Liverpool, en í myndbandinu syngja þeir meðal annars "You'll Never Walk Alone" saman.
Lovren var við stýrið á bílnum og samkvæmt fjölmiðlum á Englandi gæti hann verið í vandræðum fyrir að brjóta nokkur umferðalög, eins og að hafa engur hendur á stýri og nota farsíma undir stýri.
Lögreglan í Merseyside rannsakar nú málið, en það verður fróðlegt að sjá hvort þetta dregur einhvern dilk á eftir sér.
Hér að neðan má sjá brot úr myndbandinu.
Athugasemdir