Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   fös 30. september 2016 18:27
Magnús Már Einarsson
Ruth Þórðar: Búið að vera alltof stressandi
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
„Þetta er búið að vera alltof stressandi. Við komum okkur í alltof erfiða stöðu en við gerðum það sem þurfti í dag og kláruðum þetta. Það er mjög þægilegt," sagði Ruth Þórðar, fyrirliði Fylkis, eftir markalaust jafntefli gegn Selfyssingum í kvöld.

Jafnteflið nægði Fylki til að tryggja sæti sitt í Pepsi-deildini en tap hefði fellt liðið.

Lestu um leikinn: Fylkir 0 -  0 Selfoss

Selfoss var líklegri aðilinn í leiknum í kvöld þar til Sharla Passariello fékk að líta rauða spjaldið. Sharla sparkaði aftan í Ruth þegar boltinn var farinn í burtu.

„Þetta var alltaf rautt. Hún fór beint aftan í mig. Þetta var eitthvað pirringsbrot og klárt rautt spjald," sagði Ruth.

Fylkir endaði í 8. sæti í Pepsi-deildinni í sumar en Ruth telur að það þurfi að styrkja liðið fyrir næsta tímabil.

„Við erum frekar fámennur hópur og við þurfum að styrkja okkur. Við erum með ungar stelpur úr öðrum og þriðja flokki sem eru að stíga sín fyrstu skref. Við þurfum að styrkja liðið ef við ætlum að fara í einhverja toppbaráttu."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner