Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 30. september 2016 10:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Scholes: Liverpool getur unnið deildina
Paul Scholes
Paul Scholes
Mynd: Getty Images
Paul Scholes, goðsögn Manchester United hefur trú á að Liverpool muni berjast um Englandsmeistaratitilinn eftir góða byrjun á leiktíðinni.

Lærisveinar Jurgen Klopp eru með 13 stig eftir sex leiki og eru í 4. sæti.

„Liverpool lítur út eins og lið sem getur unnið deildina," sagði hann við BT Sport. „Það er stór áskorun að mæta Manchester United í október."

„Þeir myndu örugglega sætta sig við jafntefli núna. Ég hafði áhyggjur af þeim varnarlega en sóknarlínan þeirra er svo góð að þeir geta skorað á móti hverjum sem er," sagði Scholes.
Athugasemdir
banner
banner
banner